Ég veit ekki alveg á hvaða hluta huga.is ég á að leita til að bera upp þessa spurningu en niðurstaðan var Grafík.
Ég er búinn að vera í vandræðum með forritaval fyrir verkefni í skólanum.
Ég hef hugsað mér þetta verkefni sem ,,margmiðlunarshow". Þar sem að ég get verið með tónlist sem spilast automatískt undir, verið með valmynd og farið á undirsíður þaðan. Í raun sýning á verkefnum annarinnar. Ekki ósvipað Margmiðlunarsmiðjunni. Forritið þarf að vera frekar einfalt og þæginlegt, með möguleika á innsetningu mynda og texta. Steppinu einfaldara en flash.
Ef einhver er með forrit í huga sem uppfyllt gæti kröfur mínar, endilega sendið mér línu.
kveðja, Guðgeir.