Ég var að spá hvort einhverjir hér væru að hugsa sér að fara e-ð til útlanda í meira nám tengt grafíkinni. Ég var í morðdýra margmiðlunarskólanum, sem ég ætla ekkert að fara dissa hér, en mig langar að fara út og þar með sneiða fram hjá LHÍ. Ég var að hugsa um England, en nú er ég að skoða Köben, hefur einhver skoðað skóla þar? Ég veit að Danir eru miklir húsgagna- og ljósahönnuðir en veit í rauninni ekkert um grafíkina þar.