Hmm, þetta áhugamál virðist virkara í dag en það hefur verið í eitt til tvö ár, ekki satt?
Sjálfsagt er því að þakka áhuga yngri hugara sem finna ekkert endilega til minnimáttarkenndar gagnvart atvinnumönnunum sem hafa víst of mikið að gera, (lol-og réttlætanlegt lol ef mið er tekið af hönnuðastéttinni í dag og verkefnum sem henni býðst) eða eru of fínir með sig til að skvetta úr listrænum viskubrunnum sínum yfir áhugamennskupakkið. Allt er þetta til bóta.
—–