Mig langaði til að spyrja snillingana hérna að spurningu.

Kann einhver hérna góða leið til að teikna litla kubbakalla á borð í photoshop? Kubbakallar á borð við þá sem ég er að tala um sjást t.d. á síðunni hérna: http://www.k10k.net/frames.aspx?section=issue&id=107

Þetta er eflaust frekar aulaleg spurning. Málið er bara að mér finnst erfitt að teikna þá í photoshop, þ.e. þeir verða ekki nógu kubbalaga. Ætti ég að búa til eitthvað grid eða er málið bara að vanda sig og vera þolinmóður?

Það væri voða gaman ef einhver hérna gæti bent mér á góða leið til að gera þetta fljótt og skammlaust.

Takktakk.