Ég er frekar lélegur í grafík en það kemur oft fyrir að mig vantar annað hvort einhverjar hugmyndir eða þá hreinlega flotta grafík fyrir einhvern verkefni sem ég er að vinna að.
Þetta eru flest einhver verkefni sem tengjast mínum áhugamálum (ljósmyndun, tölvum, vefsíðugerð..) og eru ekki verkefni sem ég mun fá neitt borgað fyrir.
Eru einhverjar síður á netinu þar sem maður getur kannski útlistað hvers konar grafík verk manni vantar og svo koma einhverjir grafík snillingar eins og þið og reynið að hanna eitthvað sniðugt. Maður geti síðan valið það besta og í verlaunað þann hinn sama með einhverri smá upphæð - er eitthvað svona dæmi til á netinu?
Ég er oft að skoða hjá ykkur tilraunastofuna og myndi mikið langa stundum um að geta sett þar inn mín raunverulegu grafík vandamál. Eru engar hugmyndir um það að einhverjir aðrir geti sett inn verkefni og kannski einnig verðlaunað þann sem honum finnst eiga besta verkið með t.d. lítilli upphæð.

Eru kannski einhverjir hér sem hefðu áhuga á að spreyta sig á einhverri hönnun fyrir mig án þess að vera vissir um að fá borgað fyrir það?

Palm