Nú er 3dbrain.com að opna og verður þetta 3d community sem er eingöngu fyrir Íslendinga og til að þeir geti sýnt sín verk og skoðað önnur, einnig verður models, möpp og fleira. það hefur vantað svona síðu á Íslandi og er hún á lokastigi. Kiddi frá WwW.Pentagon.Ms er að kóða fyrir mig helling í PHP og hann á mikinn þátt í að koma upp síðunni líka. Allar ábendingar eru vel þegnar hvað þið viljið fá á svona síðu. Ég sendi inn grein á korkana um að 3dbrain.com væri á leiðinni upp og hefur E-mailið ekki verið jafn fullt hjá mér í langan tíma og ég er mjög ánægður með það. Það er greinilegt að fólk vill fá 3d síðu upp fyrir sig. Þennan draum ætla ég að uppfylla og vona að stuðningur verði mikill og ábendingar hvað megi fara betur verða sendar inn!

Núna skora ég á alla að senda inn hérna HVAÐ þið viljið á þessa síðu og hvað er það sem er inn í dag á 3d síðum :)

Nú að sjálfsögðu verður maður að vinna með fólkinu sem skoðar síðuna! :)

Ég ætla að reyna koma síðunni upp sem fyrst og takk fyrir þann stuðning sem mér hefur verið sýndur af ykkur fólki hérna á Huga!

Zeolite
www.zpstudio.com
www.3dbrain.com
Zeolite