Advert keppni. Jæja enn og aftur ætla ég að setja keppni af stað og vona hið besta um að fleiri notendur taki þátt í þetta skipti.

En komum okkur að keppninni, keppnin er um að Advert auglýsingu. Auglýsingin má vera allt frá bar/ball/raftækja auglýsing fyrir hvaða fyrirtæki sem er. Ykkur er frjálst að velja hvernig Advert(auglýsingu) af hlut/skemmtun og það í þeim dúr.

Þessi keppni hefur örfáar reglur, en þær eru:

1. Haldið öllu innan siðferðislegra marka.
2. Verkið sem þið sendið inn verður að vera ykkar verk. Verið tilbúin til að sanna það.
3. Myndin má ekki vera stærri en 1024x768 og Hugi gæti einnig átt bágt með myndina sé skráarstærðin stór.

Þið veljið hvaða forrit þið notið, frá MS Paint upp í Maya. Ykkar val.

Keppni lýkur þann 5. Maí.

Sendið þetta inn sem mynd, og hafið “- Keppni” sem viðskeyti.

Gangi ykkur vel.

Kveðja, whiMp.