Góðann daginn hugarar. Ég hef áhveðið að halda keppni númer 2 í þetta sinn og vona eftir að fleiri notendur taki þátt.

En komum okkur að keppninni, keppnin er um að gera movie poster sem þið gerið.

Þessi keppni hefur örfáar reglur, en þær eru:

1. Haldið öllu innan siðferðislegra marka. Ef þið kjósið að hafa horror theme þá er það í lagi en ég tala um siðferðislegra marka þá er talað um ekkert nauðgunar drasl eða e-h í þeim dúr. Allt blóð og þvítengt er leyfilegt.
2. Verkið sem þið sendið inn verður að vera ykkar verk. Verið tilbúin til að sanna það.
3. Myndin má ekki vera stærri en 1024x768 og Hugi gæti einnig átt bágt með myndina sé skráarstærðin stór.

Þið veljið hvaða forrit þið notið, frá MS Paint upp í Maya. Ykkar val.

Keppni lýkur þann 1. Apríl.

Sendið þetta inn sem mynd, og hafið “- Keppni” sem viðskeyti.

Gangi ykkur vel.

Kveðja, whiMp.