Ég ætlaði að etja til smá keppni. Ég stal þessari hugmynd af erlendri síðu þar sem að þar komu út mjög flottar myndir.

En keppnin er þannig að ég læt ykkur fá mynd og hún þarf að vera aðalatriðið í myndinni ykkar - eða allavegana augljós partur af myndinni. Þið megið breyta henni hvernig sem þið viljið og þær þurfa ekki að vera í neinum stíl.

Þið megið nota hvaða forrit sem er og þegar þið eruð búin þá sendiði inn myndirnar hér á áhugamálið.
Ein mynd á mann svo að það troðfyllist ekki allt af myndum.

En hér er svo myndin: http://r2d2.stcloudstate.edu/r2d2.jpg

Gangi ykkur vel.