Annaðhvort eru allir búnir að missa áhugann á grafík.. eða þá að fólk er að plotta eitthvað rosalegt.

Hvað eru menn að gera þessa dagana? Og hvað ætla menn að gera í nánustu framtíð?

Sjálfur er ég önnum kafinn við að hanna dót fyrir einhver verkefni í skólanum, en persónuleg síða er samt á næsta leiti.. Best að drífa bara í þessu, rífa plásturinn af með hraði ;)

Nú eru einhverjir að safna saman í grafíkera registry, Egill.net og einhverjir fleiri.. á það að vera eitthvað risa project eða?

Svo á mar nú von á New Masters of Photoshop, og hún á eflaust eftir að triggera einhvert fikt.

.
.
.

En kommon nú fólk, láta vita hvað verið er að aðhafast, hlýtur bara að vera eitthvað stórt. Eða ekki neitt?