Sæl verið þið.

Ég ætla að skjóta af stað keppni í grafískri hönnun, til að halda upp á komu á nýju nafni.

Þessi keppni hefur örfáar reglur, en þær eru:

1. Haldið öllu innan siðferðislegra marka.
2. Verkið sem þið sendið inn verður að vera ykkar verk. Verið tilbúin til að sanna það.
3. Myndin má ekki vera stærri en 1024x768 og Hugi gæti einnig átt bágt með myndina sé skráarstærðin stór.

Þið veljið hvaða forrit þið notið, frá MS Paint upp í Maya. Ykkar val.

Keppni lýkur þann 17. október.

Sendið þetta inn sem mynd, og hafið “- Keppni” sem viðskeyti.

Gangi ykkur vel.

Kveðja, Steini.