Mig langar að kynna fyrir ykkur síðuna mína, aftur.
www.photoshoppid.tk og www.photoshoppid-forum.tk


Ég er að reyna að koma af stað reglulegum keppnum í Photoshop og enn sem komið er þá er þemað að breyta ljósmyndum. En þetta eru bara fyrstu þrjár keppnirnar og það munu koma fleiri krefjandi keppnir eftir því sem fleiri koma, taka þátt og sýna áhuga. Svo er ekki fjarri lagi að koma og stinga uppá einhverju skemmtilegu þema!

14-15 keppendur geta tekið þátt í hverri keppni og um leið og keppnin er full þá fer kosning í gang. Þetta ættu sem sagt að vera snöggar keppnir eftir því hversu fólk er áhugasamt um að taka þátt.

Ég vil taka það fram að þetta er alls ekki í samkeppni við huga.is/grafik heldur vil ég hafa samstarf hérna á milli. Ég hangi mjög mikið hérna inni en mér finnst persónulega þetta áhugamál hreyfast of hægt svo mér datt í hug að búa til eitthvað að gera.

Það geta einungis skráðir meðlimir tekið þátt en það er frítt að skrá sig og tekur örstutta stund!

Komið og sýnið hvers megnug/ir þið eruð!