Loksins, loksins!

Hönnunarkeppnin er að hefjast.

Reglur

Allir mega taka þátt og frjálst er að nota öll grafík forrit sem völ er á (Nema Paint og forrit á við það)

Markmiðið er að búa til Bakgrunn. Stærðin verður að vera 1024x768.

Þegar þið hafið lokið við verkið, þá skuluð þið senda það inná tilkynningu sem verður undir nafninu “Hönnunarkeppni”. Athugið að aðeins skal senda mynd þar inn, engin álit. (Álit verða leyfð á korkunum).

Verkið á að koma svona inn:
[url= *LINKUR HÉR ]NAFN Á MYND HÉR[/ URL]

Skilafrestur er 1. Október.

Engin verðlaun verða veitt við þessa keppni, þar sem þetta er fyrsta keppnin sem er haldin.

Ef fólk tekur vel í þetta og margir taka þátt, þá skal ég reyna að fá verðlaun fyrir næstu keppni.

Aðeins má hver senda inn eina mynd. (Ef þið viljið breyta, hafið þá samband við mig)

Kosning

Þegar 1. Október rennur upp, þá verður sett inn könnun hingað á áhugamálið með nöfnum allra sem tóku þátt.

Könnunin verður látin ganga í tvo daga.

Þeir fimm sem fengu flest atkvæði komast í úrslit.

Þá kemur önnur könnun, sem einnig verður látin ganga í tvo daga.

Sá fær flest atkvæði sigrar keppnina.