Góðan daginn. Sigurbjörn Búi Baldvinsson heiti ég.
Hef ég verið að vinna í kvikmyndagerð í langan tíma, og hef verið að gera allt á milli himins og jarðar í þeim bransa. Allt frá því að sækja kaffi og að leikstýra.

Ég er að vinna að ákveðnu verkefni sem gæti verið skemmtilegt og uppbyggjandi fyrir þá sem vilja. Ég er búin að vera með handrit í vinnslu í þó nokkurn tíma en nú fer að koma að því. Þetta er kómískt handrit í anda Pixar animation.
Og er stefnan tekin á að gera það í þrívídd.
Ég er að vinna að því að þessi mynd verði gerð hérlendis til að styrkja þá sem eru að koma sér áfram í þessum geira.
Þetta er ekki gert frítt og þeir sem koma að þessu verkefni fá greitt. Og einnig ef myndin nær langt er það að sjálfsögðu betra fyrir alla.
Verið er að vinna á fjármögnun á myndinni.

Við leitum að fólki allt frá því að gera storyboard til þrívíddarvinnslu

Þeir sem hafa áhuga á þessu geta sent inn sýnishorn af því sem þeir hafa gert.
til 3d@anotherparadise.com
Big Brother