Málið er bara það að ég er stúdent og mig langar að læra tölvuleikjahönnun. Ég er búinn að skoða nokkra skóla, en það er einn skóli sem mér líst þónokkuð vel á. Hann heitir Fullsail, staðsettur í Orlando, USA. Ég er búinn að lesa nokkrar greinar hér á Huga og bæði er sagt að Fullsail sé lélegur skóli, og einnig að Fullsail sé 3. besti skólinn í tölvuleikjahönnun.

Ástæðan af hverju ég skrifaði þessa grein er að mig langar helst að fá álit Hugara á Fullsail. Veit ég að einhverjir Íslendingar hafa farið í Fullsail, og væri brilliant að fá smá feedback frá þeim, og einnig langar mig að vita hvort það er til BETRI skóli en Fullsail, mögulega á Norðurlöndunum.