Er að hugsa um að selja Ipodinn minn sökum þess að ég hef gjörsamlega ekkert notað hann og hef í raun ekkert við svona öfluga græju að gera.
Hann er að gerðinni Ipod Touch 16GB og var keyptur í lok mars ef ég man rétt.
Hann er í mjög fínu ástandi. Með honum fylgja tvær hlífar, ein svört úr gúmmíi og ein glær úr plasti. Tók mig minna en viku að sprengja heyrnatólin sem komu með en get svo sem látið Sennheiser in-ear heyrnatól fylgja.
Var að hugsa um 30 þúsund kr. fyrir allan pakkan.