Komiði sæl, ég keypti frekar ódýrt 5,1 creative sbs 580 hátalarasett.

Þegar ég ætlaði að tengja snúruna úr bassaboxinu við tölvuna þá er bara ein innstunga fyrir hátalara eða heyrnatól en 3 klær eða tenglar frá bassaboxinu.

Er ekki til eitthvað stykki sem maður getur sameinað snúrurnar 3 í 1 tengienda sem kemst þá í tölvuna? =S

Bætt við 29. desember 2007 - 16:18
og já, ég er með fartölvu og aðeins eina innstungu fyrir hátalara eða heyrnatól