Mig langar að fá mér bassakeilu í bílinn en veit ekkert um þetta svo ég þarf nokkur ráð.

Ég vil ekki eyða einhverju stórfé í þetta (enda þarf ég ekkert rosalegt).

Þarf ekki útvarpið/spilarinn að passa við þetta allt saman? (Þetta er nýr Honda Jazz og hann er með svona innbyggðu útvarpi/spilara sem ég veit ekkert hvað heitir).

Öll hjálp er vel þegin.

Með fyrirfram þökk.