Ég sting upp á því að hér verði búin til nýr flokkur sem mun nefnast HiFi líkt og gert hefur verið með “bílgræjur” hér á áhugamálinu græjur. Eða á áhugamálinu kynlíf, en þar nefnist undirflokkurinn einmitt “svona fullorðins…” Segir þetta ekki akkúrat það sem ég meina ? :)

Veit ekki hvort að ég sé einn um þetta, en maður er kominn með nóg af umræðum um bilaðar myndavélar, usb tengi og 1200W bassakeilum… Væri kannski líka sniðugt að fá sér flokk undir tæknilega aðstoð/bilanir :)