Málið er að ég lánaði vini mínum settið mitt um daginn fyrir eitthvað partý fyrir viku eða tveim. Ég var að tengja það fyrst núna aftur og þá virkar annar hátalarinn ekki. Ég prófaði hinn hátalarann í hinu tenginu og hann virkaði þar þannig að það er ekki tengið.

Hvað get ég gert í þessu? Á btw eftir að tala við hann um þetta, ég er ekki sáttur við þetta, ég hef geymt hátalarann í ónotuðu rúmi allan tímann þannig að líkurnar á að ég hafi gert eitthvað eru ekki miklar.

Öll ráð vel þegin.

Bætt við 17. febrúar 2007 - 15:11
Ég prófaði hinn hátalarann í hinu tenginu og hann virkaði þar þannig að það er ekki tengið.

Þetta á auðvitað að vera að ég prófaði hinn hátalarann í tenginu sem sá bilaði á að vera í og auk þess prófaði ég þann bilaða í tenginu sem sá sem virkar á að vera í.