Jæja enn og aftur hef ég ákveðið að vekja upp alvörugræju umræðu hérna á Huga, Mig langar að sjá hversu margir hérna á Huga hafa áhuga á einhverju meira græju tengdu en bara ghetto-blasterum og svona eyrnatappa græjum (mp3)


Mig langar að fá komment frá sem flestum og heyra hvaða / hvernig græjur Hugarar eru með.

(Sjálfur er ég með Bryston blokkir, First sound formagnara, Shangling CD spilara og B&W 802 hátalara)