Þú getur ekki tengt þessa hátalara beint við tölvuna, þú verður að vera með magnara og tengiru tölvuna við magnarann. Allir hátalarar þurfa magnara. sumir eru með innbyggðann magnara og því getur stungið þeim beint í samband við tölvuna, en þannig hátalarar kallast active, og þannig eru nánast allir tölvuhátalar. En hitt er miklu algengara að maður þurfi að magna hljóðið með utanaðkomandi magnara og það á við gólfhátlara (nema Bang&Olufsen) og flesta svona álvöru hátalar þurfa magnara. Þetta á líka við um heimabíó pakka (hometheater in a box) sem er mjög vinsælt um þessar mundir nema þá er magnarinn innbyggður í dvd spilarann.
Ef ég á að gefa þér ráð um kaup þá þyrfti ég fyrir það fyrsta að vita svona sirka hvað þú ert tilbúinn í að eyða í þetta. Þú getur alveg fengið pakka t.d. frá logitech með nokkrum litlum hátölurum og svo bassaboxi og á ekkert alltof mikinn pening. Svo getur líka keypt þér magnara og hátalara í ætt við þessa sem þú sem þú varst að skoða og þá ertu komin með mun betri hljóm. Nýr magnari kostar frá 40.000 ef þú vilt heimabíómagnar (5-7 hátalara + bassabox), og þá eru Denon frekar heitir. sterio magnarar kosta frá 30.000kr og þá eru Nad magnarar að gera fína hluti. Notaðir magnarar geta verið töluvert ódýrari og oft mjög góð kaup, en þá færðu kanski ekki nýjustu suround tæknina ef það er það sem þú ert að leitast eftir.
Ef þú ert tilbúinn að eyða það miklu pening þá mæli ég sterklega með þessum
http://cgi.ebay.com/Athena-AS-F2-2-Floor-Tower-Speaker-DUAL-8-DRIVERS-NEW_W0QQitemZ260060871032QQihZ016QQcategoryZ14993QQrdZ1QQssPageNameZWD1VQQcmdZViewItemen parið er á rúmlega 60þúsund komið heim
Ef þú ert aðalega að leita eftir miklum háfaða og miklu bassa og hljómurinn skiptir minna máli þá gæti verið ódýrara kaupa JBL.
Þú þarft ekki að kaupa bassabox ef þú kaupir stóra gólfhátalara, en það getur þó bætt töluverðu við ef þú ert tilbúinn að eyða einhverju í það. Sjálfur er ég með bassabox sem kostar meira heldur en allt annað í græjusafninu til samans, en ég myndi samt ráðleggja þér að bíða með bassaboxið.
Ef þú ert með takmarkað fjármagn þá gæti samt verið ódýrara að fá sér milli stóra hátalara (bookshelf speakers) og svo millistórt bassabox.
Annars er kosturinn við það þegar að þú kaupir magnara og hátalara er að þú getur alltaf breytt og bætt græjurnar þínar smátt og smátt yfir árin, eða eftir einhver ár.
Ég vona að þetta hafi skýrt eitthvað út fyrir þér. Ef þú skilgreinir svo betur hverju þú ert að leita eftir og hvað þú ert tilbúinn í að eyða (það eru engin verðþök, getur eytt mörgum milljónum) þá skal ég glaður koma með einhverjar ráðleggingar.