Sælir Hugarar, var að velta fyrir mér hvort hvort einhver gæti hjálpað mér með smá vandamál. Keypti mér ofangreindann dvd spilara í Ormsson í gær og skellti Pulse tónleikadiskinum í hann þegar ég kom heim og horfði á með heimabíóið í gangi. En málið er að þegar ég er að horfa á hann vill hljóðið hökkta þónokkuð oft sem er mjög truflandi, kíkt á diskinn og sá ekkert þar enda keyptur sama dag og spilarinn….Hefur nokkur einhver lent í svona vandamáli eðaþá bara orðið var við þetta á Pulse disknum? :)