ég var einn inní stofu núna rétt áðan og sat í stól þegar að ég heyri skyndilega skrýtið hljóð, svona ekki ósvipað og þegar að gosflaska er opnuð svona shssss…. hljóð. Mér brá geðveikt mikið þar sem að ég var bara einn þarna. Síðan hélt þetta hljóð áfram og ég sá að þetta kom frá t.v. fjarstýringunni. Og núna er ég geðveikt hræddur við hana! Hvað er málið með þetta? Hvað gæti þetta verið?