Ég átti i-pod og setti alla geisladiskana mína inná i-tunes og það tók sinn tíma en núna var ég að fá mér Sony mp3 spilara en kann ekki að flytja lögin frá i-tunes til Connect Player forritsins sem fylgir með Sony spilaranum.

Getur einhver sagt mér hvernig er hægt að gera þetta á auðveldan hátt svo ég þurfi ekki að hanga yfir tölvunni í tvo daga að copya alla geisladiskana mína aftur á tölvuna?

p.s. ég kann nánast ekkert á tölvur svo gætuð þið vinsamlegast útskýrt þetta vel.