Ég var að fá Alpine head unit frá bandaríkjunum sem ég ætla að tengja við golfinn minn. Tengið aftan á bandaríska tækinu er alveg eins og evrópska ISO tengið í bílnum mínum fyrir utan það að pinnarnir á bandaríska tenginu eru kassalaga, en hringlaga á því evrópska, svo það er engin leið að tengja þau saman.
Því spyr ég hvort að einhver millistykki séu til, eða hvort að hægt sé að kaupa svona tengi til að útbúa slíkt.

takk