Málið er þannig að ég er með heimabíó sem er tengt við dvd spilara og dvd spilarinn við sjónvarpið (duh).

Þegar ég spila dvd myndir er hljóðið flott, MJÖG hátt ef ég stilli það í botn en þegar ég horfi á sjónvarpið er það frekar lágt þótt ég stilli kerfið í botn (nota þá hátalarana á sjónvarpinu meira).

Ég get komist hjá þessu þegar ég horfi á digital ísland því þá tengi ég hátalarana beint í afruglarann en þetta get ég ekki gert með skjáeinn eða þegar ég horfi á spólu eða horfi á Sky digital (sjálfur sky afruglarinn er hjá öðru sjónvarpi annars staðar í húsinu en þetta er einhvern vegin sent á milli gegnum loftnetskerfið í húsinu. Það er líka vesen að vera alltaf að skipta.

Eru audio innstungurnar aftan á sjónvarpinu bilaðar eða hvað ?
Grasshopper: Dude, you killed me with a flash grenade!