Ég er í smá vandræðum með mp3 spilarann minn. Ég get ekki hlaðið tónlist inn á Compact Flash kortið sem fylgdi honum. Ég tel mig vera búna að ná í öll forrit sem ég þarf að nota, en þó get ég hreinlega ekki sett tónlistina inn á kortið.

Var að vonast til þess að einhver hafi kunnáttu á þessu sviði og gæti mögulega leiðbeint mér í þessum vandræðum mínum.