Mig vantar að fá skiptibox sem að er með 4-5 S-VHS/Composite tengjum þar sem ég er komin í tengingar vesen.
Hugmyndin er sú að redda því með svona boxi sem er í raun bara fjöltengi með valrofa og sendir 1 af þessum merkjum í gegn hverju sinni. Gallinn er bara sá að ég hef hvergi séð svona hérna, bara á netinu. Veit einhver um stað sem selur svona box? get fengið svoleiðis að utan á um 40$ og leit ágætlega út en vildi nú helst kaupa þetta hérna og fá að skoða það fyrst.