núna er ég að fara að setja magnara í bílinn hjá mér. en var með smá pælingu.

ég veit að það á að leggja positiva vírinn beint frá geymi í magnara og hafa öryggi sem næst geyminum. og leggja minus vírinn í boddy á bílnum.
það sem ég var að pæla afhverju að setja mínus vírinn í boddy á bílnum ? er það eitthvað betra heldur en að leggja annan vír til baka í geyminn aftur ?
núna ek ég á gömlum bíl 89" og vírinn frá mínus pól í geymi til boddys er ekki nema mesta lagi 10 kvaðröt þá myndi það skapa flöskuháls þar sem positiv vírinn er 21 kvaðröt (kaupi þetta úr pakka með 60 A öryggi)

anyone :) ?