Ég er búin að bjóða mig líka fram sem stjórnanda hér. Það er að mínu mati mikilvægt að hafa allavega þrjá til að þetta fari vel af stað, verði mikil endurnýjun í fyrstu á meðan áhugamálið er að ná festu.

Aðeins eitt í viðbót.

Í græjum er til gífurlegt úrval af tækjum og tólum, og flestir okkar (ég geri það allavega)tala um sínar græjur eins og allir aðrir viti um hvað er að ræða. Það er hinsvegar sjaldan þannig.

T.d. ef ég segi að ég sé með Beovision 1 þá veit engin hvað það er… þessvegna vil ég mælast til þess að menn skrifi líka hvurslags tæki eða tól er um að ræða til að skýra þetta betur út… t.d. þá segi ég að ég sé með Sonus Faber Concerto hátalara, þar sem margir vita ekkert hvað sonus faber er…..

Bestu kveðjur,
Bebeca