Zune-review, Fyrsti dagur Ég keypti mér eitt stykki Zune um daginn. Ég prófaði hann fyrst þegar ég var að vinna og var með hann í gangi næstum allan tíman, í kringum 13 tíma, og það var ennþá nóg af batterýi eftir þegar ég hætti. Hljóðið úr Zune er líka margfallt tærara en nokkurntíman úr iPod verð ég að segja og hann virkar eins og draumur. Hann er aldrei hægur eða lengi að hugsa, framkvæmir undir eins. Ég hef ekki fundið fyrir neinum göllum hingað til en ég var mjög efins þegar ég keypti mér hann. Ég var nefnilega alls ekki viss hvort ég ætti að biðja vin minn um að kaupa Zune eða iPod. Samkvæmt ”reviews” sem ég las einhversstaðar hafði Zune fengið góða dóma og ég ákvað að velja Zune. Það er líka skemmtilegt að vera með þeim fyrstu á landinu sem eiga gripinn.


Reyndar hef ég fundið einn galla. Vegna lélegs móðurborðs í tölvunni minni, svona 3-4 ára gamalt, þá á hún i vandræðum með rafmagn í hann svo ég get ekki sett lög í hann úr minni. Ég reddaði mér með því að deila öllu lagasafninu minu yfir á tölvu mömmu minnar í gegnum lan (36gb eða svo), þannig að það reddaðist. En eins og ég sagði áðan er hljóðið bara draumur, nokkuð betra en úr hljóðkortinu mínu! Hann kámugast heldur ekki eins auðveldlega og iPodinn og er voðalega idiot proof, kannski of einfaldur. Gæti verið að svo muni rockbox koma á hann í nánari framtíð. Það er ennþá verið að leita að lausn að setja það á hann.
Reyndar hefur Zune svokallað playsforsure svo það er ekki hægt að spila lög sem þú hefur t.d. keypt af Itunes eða Napster o.sv.fr., sem að er slæmt.


Myndgæðin í þessu er líka allveg rosaleg, eitt orð “vá”. Zune er aðeins stærri en iPod en samt ekki óþægilegur í vasa. miklu auðveldara líka að opna hann og skipta um battery og annað (hef ég lesið og séð á myndum og videoum) miðað við hvað það var mikið vesen á iPodinum.


Ef ég fer úti nánari “specs”:

* CPU: Freescale i.MX31L processor; ARM Core, FPU (SCIMX31LVKM5 / 3L38W / CTAU0629) [2]
* RAM: 64 MBytes x32 Mobile SDR DRAM / 133 MHz / 90 mA (K4M51323PC-DG75) [3]
* Flash: 2 MBytes NOR flash, 3.3V, 1Mx16 Boot block (PH28F160C3TD) [4]
* FS456LF: PC to TV video scan converter (Macrovision 7)
* Audio: Stereo CODEC with speaker driver / 0.9 W power out (WM8978G) [5]
* FM Tuner: Silicon Labs Si4701 single-chip radio tuner (4701A15) [6]
* TV out: Focus (FS456) [7]
* USB: USB2.0 Philips (ISP1504) [8]
* bus switch: Low voltage octal FET bus switch (CL245 / SN74CBTLV3245A) [9]
* ATA driver (?): 8-bit bus transceiver/driver (P003 / 620A5)
* Wi-Fi: RF/BB/MAC 802.11g Wi-Fi (KeyStream) module (KS3021 / KS7010)
* Power manager: Freescale MC13783 [10]
* Battery: Li-Ion battery 3.7 V / 800 mAh (G71C0006Z110)
* Hard Disk: Toshiba 30 GB hard disk, 1.8" (MK3008GAL) [11]

(Tekið af http://en.wikipedia.org/wiki/Zune )


eða
400mhz og 64mb Ram og 30 gb diskur


Reynsla mín á þessu tæki hefur ekki verið neitt annað en góð, mæli stórlega með þessu þótt því sé haldið fram að Zune komi ekki til Evrópu fyrr en annaðhvort seint á árinu 2007 eða snemma 2008. Annars þá er þetta brjálað tryllitæki fyrir svona “tónlistargæða whores” eins og mig. Ekkert kemur mér í betra skap en svona virkilega tært hljóð.

Þakka fyrir mig.
Spark(pjedur á huga)




….Yfirfarið af “Toggi”