Ekki hefur mikið verið í gangi á þessu áhugamáli og þykir mér ljóst að ef ekkert verður gert endi þetta áhugamál eins og mörg önnur hér á Hugi.is, deyjandi hröðum dauðdaga.

Það kæmi mér heldur ekkert á óvart ef að hreinsað yrði til á Hugi.is á næstu misserum þar sem það kostar bæði peninga og dýran tækjakost að halda úti jafn stóru vefsvæði og Hugi.is er.

Það mundi bara þýða eitt og það er að þetta áhugamál yrði lagt niður í núverandi mynd. Þetta eru þó bara vangaveltur mínar og ber ekki að taka sem óyggjandi staðreyndir um það sem koma skal, en það er alveg ljóst að á þessu áhugamáli verða golfáhugamenn að bæta sig og það vonandi fyrr en seinna.