Golfklúbbur Reykjavíkur varð í 12. - 13. sæti á Evrópumóti félagsliða sem lauk í Róm á laugardag. 23 lið tóku þátt í mótinu. Liðið lauk keppni á 591 höggi, eins og Pontnewjdd-klúbburinn frá Wales. Shandon Park-klúbburinn frá Írlandi sigraði, lék á 558 höggum.