Tekið af mbl.is

Heiðar Davíð á einu höggi yfir pari eftir 9 holur

Heiðar Davíð Bragason lék fyrri 9 holurnar á fyrsta keppnisdegi á móti á sænsku mótaröðinni í dag á 37 höggum eða einu höggi yfir pari vallar. Heiðar fékk einn skolla (+1) og átta pör og er í 31. - 42. sæti þessa stundina. Hægt er að fylgjast með gangi mála hjá Heiðari með því að smella á skorið á sænsku mótaröðinni.

Já glæsilegur árangur hjá okkur manni og gaman að því að íslendingur sé að ná góðum árangri á svona móti.