Haraldur Heimisson er efstur Íslendinganna þriggja sem taka þátt á Evrópumóti einstaklinga í Danmörku. Ólafur Már Sigurðsson hefur lokið leik í dag, var á 73 höggum líkt og í gær og er á samtals tveimur höggum yfir pari. Haraldur og Helgi hafa enn ekki hafið leik í dag, en Haraldur var á einu höggi yfir pari í gær og Helgi á þremur yfir.