Á sjöunda tug þátttakenda eru nú skráðir í þriðja stigamót unglinga á sumrinu, sem fer fram á Akureyri á laugardag og sunnudag. Skráningarfrestur, sem framlengdur var til að tryggja betri þátttöku, rennur út kl. 18.00 í dag, miðvikudag. Skráning fer fram hjá Golfklúbbi Akureyrar í síma 462-2974 eða netfanginu gagolf@nett.is.