Nú í sumar fékk ég einhvað kaupæði í flippi og keypti mér þetta líka fína Wilson golfsett og kerru og allt með. En svo þegar maður var búinn að kaupa þetta komst maður að því að maður kann ekkert í golfi. Jebb það er rétt, hef aldrei spilað golf en bara grunað að það sé skemmtilegt og ég er ennþá á þeirri skoðun. En málið er bara að ég kann ekkert golf. Hef ekki spilað það, það eina sem ég hef gert er að fara uppá grafarholtsvöll og bomba kúlum þarna úr byggingunni fyrir þetta.

Hvar er besta að læra golf?
Cinemeccanica