Tiger Woods hefur lokið leik á öðrum degi, hann spilaði í dag á 71 höggi en í gær spilaði hann á 74, par Southern Hills vallarins er 70. Cuttið verður líklega 6 yfir pari en ekki hafa allir lokið leik á öðrum degi. Tiger verður því að spila mjög vel um helgina ætli hann sér að vera með í toppbaráttunni. Þeir sem eru efstir núna á fjórum undir eru Mark Brooks (hann hefur unnið stórmót áður, PGA mótið), Retief Goosen og J.L. Lewis, þeir hafa allir lokið leik í dag. Phil Mickelson er fjórði á tveimur undir en hann á eftir að ljúka leik í dag, önnur stór nöfn í toppbaráttunni eru David Duval og Sergio Garcia sem eru báðir á einum undir pari (Garcia á eftir að klára annan hringinn).<br><br>jogi - smarter than the average bea
jogi - smarter than the average bear