Ég verð nú bara að segja það að ég er allt annað en sáttur með stjórnendur þessa áhugamáls! Kominn vika(föstdag fyrir viku) síðan ég sendi inn grein og hún hefur ekki ennþá verið samþykkt!

Axes var síðast skráður inn í gærkvöldi, wiss var hér síðast inni 2. maí og Magnih var skráður síðast inn fyrir viku en ég verð nú bara að segja það að hann hefur verið skástur af þessum þremur!

Þetta áhugaleysi stjórnenda er til skammar og vægast sagt hundfúlt. Sérstaklega þegar maður leggur metnað í að skrifa greinar sem að tekur svo eilífð að samþykkja.

Þetta verður þess valdandi að maður nennir ekki eð skrifa greinar og ef þetta lagast ekki þá hætti ég hreinlega að koma inná þetta áhugamál!
!