Garcia klúðraði 6 högga forustu sem að hann hafði fyrir síðasta hringinn á Wachovia mótinu, sem að er hluti að PGA mótaröðinni.

Hann lék síðasta hringinn á pari á meðan Vijay Singh og Jim Furik spiluðu síðasta hringinn á 66 höggum, eða 6 höggum undir pari, og jöfnuðu þar með Garcia.

Minn maður, Vijay Singh, sigraði svo á fjórðu holu í bráðabana.

Ég verð nú bara að segja það, þótt ég haldi mikið uppá Singh, þá eru þetta mikil vonbrigði með Garcia því ég var að vonast til að hann myndi nú vinna sitt fyrsta mót í langan tíma!
!