Golfáhugafólk.

Sunnudaginn 12. september n.k. verður haldið í fyrsta sinn opna SKÍ golfmótið á golfvellinum í Öndverðanesi. Spilað verður með Texas scramble fyrirkomulagi og verður ræst út frá klukkan 8 til 14:30. Mótið er opið öllum félögum golfklúbba innan GSÍ og fer skráning fram á golf.is .

Vegleg verðlaun verða í boði þ.á.m. sólarlandaferð að eigin vali í eina viku frá Úrval Útsýn, fatnaður frá 66°N, Neutral vörur frá Danól svo eitthvað sé nefnt. Nándarverðlaun á öllum par 3 holum og auk þess verður dregið úr skorkortum í mótslok. Allir þátttakendur fá teiggjöf.

Vonumst við til að sjá sem flesta skíðamenn styðja við bakið á landsliðinu okkar, með góðri þáttöku er tryggt að mótið verður árlegur viðburður í mótaskrá SKÍ og GSÍ.

Kær kveðja,
Alpagreinanefnd Skíðasambands Íslands.