Hver er ykkar skoðun á því að leyfa foreldrum að vera kylfuberar á Vaxtalínumótaröðinni?
Mér finnst nokkrir foreldrar ansi harðir við börnin sín og aðrir reyna jafnvel að svindla á öðrum krökkum með einhverju reglurugli sem stenst svo engan vegin. Eini tilgangurinn hjá sumum er að brjóta hina krakkana niður til að upphefja erfingjan sinn. Hef séð þetta alltof oft og vona að GSÍ fari að athuga þessi mál betur.