Allir hafa einhverntíma tekið vinnuna með sér heim en Ian Woosnam gekk lengra en flestir.
En Woosnam lét útbúa fyrir sig 500 fermetra púttvöll í garðinum heima hjá sér.
Ég veir að ég get unnið fleiri mót og komist í Ryder liðið ef ég næ stutta spilinu aftur eins og það var. En ég hef verið að slá vel frá teig að flöt en í flestum tilfellum hafa púttin brugðist mér. En núna get ég æft mig í þann tíma sem ég þarf til að ná árangri þegar ég er kominn með almennilega flöt.

En hann slær sennilega ekki út Celine Dion sem fékk golfbakteríuna og fjárfesti í 18 holu einkavelli á landareign sinni í Kanada og verðið var vist nokkuð hátt, eða nokkrar milljónir dollara.

Þetta er almennilegt.
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.