Ég er kominn með í pokann þetta undratól ping craz-e, hef átt í töluverðum vandræðum með púttin en þessi pútter er rosalegur.

Hann hjálpar mér alveg gríðarlega með strokuna þannig að nú þarf maður bara að finna línuna og hafa engar áhyggjur af strokunni, ótrúlegt en satt.

Mér fannst hann ekki flottur til að byrja með en svo þegar maður er kominn með hann í hendurnar venst hann alveg ferlega vel, mæli eindregið með kvikindinu allavega tjékkið á honum ef þið eruð að leita ykkur að nýju potpriki.

vildi bara segja ykkur þetta, njótið komandi golfsumars.
Maggi