Vijay Singh og Ernie Els unnu báðir um helgina, sitt hvoru megin á hnettinum.

Hvernig ætli Tiger Woods líði þessa dagana? Á meðan að hann hefur aðeins tekið þátt í einu PGA móti á tímabilinu hafa helstu keppinautar hans allir unnið á PGA, fyrst Ernie Els, svo Phil Mickelson og loks Vijay Singh.

Allir þessir þrír virðast í hörkuformi, sérstaklega Phil Mickelson sem hefur verið nálægt sigri í öllum 3 mótunum sem hann hefur tekið þátt í á árinu.

Það verður gaman að fylgjast með næstu helgi þegar Tiger, Vijay og Phil berjast á Buick Open ásamt bestu golfurum heims. Þvi miður verður Ernie Els ekki með.<br><br>——————-
<i>make par, not war</i
——————-