Ég var svona að velta því fyrir hvort það viti einhver um inniaðstöðu sem maður getur æft í reglulega án þess að borga morðfjár fyrir. Ég nebbla bý í bænum yfir veturinn meðan ég er í skóla, en er ekki í neinum klúbb hér á höfuðborgarsvæðinu.

Eini staðurinn sem ég veit um sem er ekki bara fyrir klúbbmeðlimi er Sporthúsið. Þar er náttla alveg brilliant aðstaða, en það kostar bara morðfjár að æfa þar, og er allavega ekki á færi “the average Joe” að æfa þar reglulega.

Einhverjar hugmyndir? Hvernig er aðstaðan hjá klúbbnum ykkar?