Callaway hefur sent frá sér nýjan driver sem ber nafnið ERC Fusion og er betrumbæting á C4 drivernum sem kom frá þeim árið 2001. Það sem Fusion hefur framyfir C4 er að í honum er blandað saman Titanium og grafíti í hausnum þannig að hljóðið í kylfunni er betra en var í C4 sem var einungis gerður úr grafíti. Einnig eru þeir með bolta sem ber nafnið HX tour. Sagan segir að þessi bolti og driver séu að gefa enn meiri lengd en Titleist K driverinn og Pro VI boltinn frá Titleist.