Ég tek alveg undir með þér ProV1 að það mætti vera meiri umfjöllun um norðurlandamótið í golfi, sérstaklega á golf.is
Það voru jú 16 Íslendingar að keppa þarna í 4 landsliðum.
Það er nú svolítið orðum aukið að öll liðin hafi endað í síðasta sæti, því karlaliðið og stúlknaliðið urðu bæði í 3ja sæti og ég held að það sé mjög góður árangur. Auk þess hafnaði Örn Ævar í 2.sæti og það held ég að sé líka mjög gott hjá honum.
Það má auðvitað gagnrýna það að ekki er verið að senda allra sterkustu keppendur Íslands á mótið, en það er ákvörðun Staffans, eða það held ég allavega.