Jæja þá er landsmótið afstaðið.<br><br>ég fylgdist með lokadegi mótsins í blíðskaparveðri í Grafarholti á sunnudag, hvað er eiginlega að gerast á þessu landi 3 dagar og bara blíða húrra fyrir því.<br>Fyrst ber að óska sigurvegurum til hamingju með sigurinn krakkarnir stóðu sig vel og margt mjög athyglisvert að gerast í golfinu um þessar mundir, Ingvar og Rut sigruðu elsta flokkinn og var sérstaklega gaman að fylgjast með Ingvari spila þó svo hann hafi gefið eftir á síðustu holunum þá var spilamennskan yfir höfuð mjög góð á erfiðum grafarholtsvelli, sem hefur fengið nýtt útlit eftir breytingar sem eru vægast sagt hlægilegar í marga staði